Stórsýningin Stóra stundin 2027

 
Stóra stundin er glæsileg sýning tileinkuð stærstu augnablikum lífsins. Sýningin verður haldin á árinu 2027 og verða nánari upplýsingar um dagsetningar auglýstar um leið og þær liggja endanlega fyrir.

 
Sýningin er ætluð þeim sem eru að undirbúa brúðkaup, fermingu, útskrift eða aðra merka tímamóta stund og vilja fá hugmyndir, innblástur og aðstoð við skipulagið.

 
Á sýningunni mun fjölbreytt úrval fyrirtækja kynna vörur sínar, þjónustu og lausnir sem tengjast undirbúningi og framkvæmd stóru stundarinnar. Gestir fá tækifæri til að hitta fagfólk, skoða spennandi valkosti og safna hugmyndum sem geta gert undirbúninginn bæði einfaldari og skemmtilegri.

 
Á dagskrá verða einnig tískusýningar og önnur kynningaratriði sem veita gestum innblástur og hjálpa þeim að móta daginn á sinn eigin hátt.